header image headerimage    
 


ABOUT:
-..........


ARCHIVES:




Wednesday, September 25, 2002

 
Sìdasta vikan ì Perugia runnin upp

KR...KR...KR...KR...

Jeg vil byrja à thvì ad òska mér og odrum KR-ingum innilega til hamingju med titilinn. Vid adra segi ég bara: FACE!!

Vid erum nù ad reyna ad gjornyta sìdustu dagana hérna ì Perugia àdur en vid hendum okkur ùt ì òvissuna ì Bologna. Vid skruppum reyndar til Ròmar um sìdustu helgi thar sem allir eru ad reyna ad nà ì peningana thìna. Verdlagid thar er vidbjòdslega hàtt midad vid Perugia. Sem verdkonnunardaemi notudum vid 66 cl af Peroni-bjòr (innlendur), hann kostar 0,88 evrur (75 ISK) ùti ì bùd ì Perugia en 1,50 evrur (128 isk) ì Ròm sem thydir 70% haerra verd ì Ròm!! Verdid à veitingarstodum er lìka thò nokkud haerra. Annars er Ròm alltaf mjog flott og magnad ad skoda stadina sem madur laerdi um ì Hinum Laerda Skòla.

Palli àtti afmaeli à mànudaginn og vid aetludum bara ad taka ròlegt kvold, spila fòtbolta vid hollensku stràkana og einhverja ìtali. Thad klùdradist svo vid fòrum bara à Shamrock (mjog toff ì joggingbuxunum) til ad horfa à Fulham-Chelsea og kannski fà okkur einn bjòr. Thessi eini bjòr àtti vin og sà vinur àtti fraenda og allt ì einu voru bjòrarnir ordnir nògu margir til thess ad taka gott afmaelisfyllerì. Eftir svona thrjà bjòra fòr afgreidslufòlkid lìka ad koma med umslag med hverjum keyptum bjòr. I hverju umslagi var midi sem stòd à: Thù hefur unnid hùfu eda thù hefur unnid bol eda eitthvad annad. Vid erum ordnir frekar reglulegir gestir tharna og erum ad fà thad til baka nùna, vid fengum meira ad segja tvaer umferdir af òkeypis staupum (allur hòpurinn var um 10 manns). Vid fòrum thvì heim um kl. 2 à mànudagsnòttina bysna hressir og hladnir gjofum. Vid létum thad thò ekki aftra okkur frà thvì ad maeta ì skòlann daginn eftir, ég thurfti ad maeta kl. 8 og Palli kl. 9. Jeg segi ekki ad vid hofum verid galvaskir en maettum thò.

Annars vorum vid ad taka lokapròfid okkar ì dag og okkur gekk bàdum àgaetlega. Kennsla heldur thò àfram fram ad helgi en à mànudagsmorgun holdum vid inn ì òvissuna ì Bologna. Vid erum ekki komnir med hùsnaedi en erum ad panta okkur hostel fyrir fyrstu dagana à medan vid leitum.

Vid sàum ad Island og Faereyjar eru bùin ad leysa deiluna um hafsvaedid à milli theirra. Gudi sé lof fyrir thad, vid vorum ordnir skìthraeddir um ad allt vaeri ad fara ì loft upp og vìkingasveitin vaeri ad bùa sig undir ad nà à sitt vald Hesti ì Faereyjum.

Ein spuring ad lokum: "Eru morgaesir à Islandi?"
Thetta var spurning sem einn kennarinn spurdi mig um daginn. Hùn à ad vera ad kenna mér landafraedi og almennt um Italìu!!! Svo àtti ég ad skrifa ritgerd um Island og ì henni var ég ad spjall um Vatnajokul (jokull=vetraio à ìtolsku) og Geysi (goshver=scaldobagno à ìtolsku) og hùn undirstrikadi vetraio og scaldobagno og setti spurningamerki vid thau. Hùn vissi greinilega ekki hvad jokull eda goshver er!!! Annars eru nù flestir sem vita eitthvad um Island og thà sérstaklega samnemendur okkar en thad kemur flestum à òvart thegar their heyra ad taeplega 300.000 manns bùi à Islandi. Thegar vid segjum thetta à ìtolsku erum vid meira ad segja yfirleitt spurdir: "Ertu viss" og er thà verid ad gefa ì skyn ad vid kunnum ekki ad segja tolurnar à ìtolsku.

Thetta verdur thà ekki lengra ad sinni, vid reynum ad halda àfram ad vera Islandi til sòma og efla thekkingu à Islandi og ìslenskri menningu.

Arrivederci.






Wednesday, September 18, 2002

 
Sìdasta helgi
-thètt skyrsla um sìdustu daga

Jaeja, vid Pàll erum bùnir ad vera duglegir frà thvì sìdasti pistill var skrifadur. Adur en lengra er haldid vil èg thò òska hinum finnska Peter Enckelman, markverdi Aston Villa, til hamingju med stòrglaesileg mistok à mànudagskvoldid ì leik gegn Birmingham. Vid horfdum à leikinn ì beinni og thetta mark kryddadi òneitanlega leikinn. Leikinn sàum vid à hinum àgaeta ìrska bar, Shamrock, thar sem vid erum mjog oft. Their syna alla leiki ùr ensku deildinni sem Skysports syna og lìka ìtalska leiki og leiki ùr meistaradeildinni, SNILLD. Hollensku vinir okkar horfa mjog oft à thessa leiki med okkur og svo er alltaf einhver slaedingur af odrum krokkum af tungumàlanàmskekdinu ad kìkja.

Annars tòkum vid Pàll okkar fyrsta thvott à laugardaginn. Maelirinn var ordinn fullur thegar Pàll var kominn ì sìdasta sokkaparid, sem var Mikka Mùs- sokkapar. Thetta var minna màl en vid héldum. Mesta vesenid var ad flokka thvottinn og drosla honum nidur ì thvottahùsid nedar ì gotunni. Fyrsti thvotturinn gekk thò ekki alveg slysalust fyrir sig thvì einn gulleitur, nyr bolur sem ég à fòr ì vélina med hvìta thvottinum og einn hvìtur bolur sem Palli à tòk smà lit ùr honum. Vid hofum thà rymi til thess ad baeta okkur ì naesta thvottamissioni.

Vid erum einnig bùnir ad festa kaup à backgammon-bordi og erum nù adaltoffararnir à "Troppunum". "Troppurnar" eru vid staersta torgid ì Perugia og à torginu er gosbrunnur. Thetta er mjog flottur midbaer og à Troppunum er alltaf fullt af fòlki, baedi à daginn thegar fòlk nytur sòlarinnar og à kvoldin thegar bjòrinn er farinn ad flaeda.

Hins vegar minntist ég um daginn à Miss Perugia- keppnina sem haldin var okkur til heidurs à sìdasta fimmtudag. Vid maettum einum og hàlfum tìma àdur en keppnin hòfst og nàdum bestu staedunum à torginu, ì svona 5 metra fjarlaegd frà svidinu. Keppnin var mjog fìn ad flestu leyti, margt var um fìna draetti (thòtt vid hofum reyndar ekki fengid dràtt ì kjolfarid), stelpurnar voru margar mjog flottar og ég man ekki eftir neinni fegurdarsamkeppni sem ég hef séd thar sem stelpurnar hafa verid jafnfàklaeddar. Annars var thessi keppni talsvert fràbrugdin thvì sem vid hofum àtt ad venjast. Thetta var ì raun meiri tìskusyning en fegurdarsamkeppni. Til daemis kom thad okkur mjog à òvart thegar, ì midri keppni, byrjudu allt ì einu einhver karlmòdel ad birtast à svidinu!!! Hvad à thad ad thyda?? Svo var passad upp à thad ad allur mogulegur klaednadur vaeri syndur. Vid sàum thetta mjog greinilega ì atridi thar sem sòlgleraugu voru thad sem var verid ad auglysa en enn betur sàst thetta ì naesta atridi sem var vaegast sagt fàrànlegt. Thà roltu keppendurnir inn à svidi, berfaettir ì sundbolum, og héldu à tveimur skòm, einum ì hvorri hendi og hòfu thà upp til skyjanna eins og skòrnir vaeru fallegri en stelpurnar. Nidurlaeging keppendanna var algjor. Thad hjàlpadi thò ì thessu atridi ad àdurnefndar karlfyrirsaetur voru lìka sendar berfaettar inn à svidid med skòna ì lùkunum. Annad sem var mjog fàrànlegt var aldur keppendanna. Thad voru stelpur tharna allt nidur ì 14 àra aldur og ein stelpan var meira ad segja barnaleg midad vid 14 àra aldur. Keppt var ì tveimur flokkum, 18+ og 18-. Femìnistahreyfingin er greinilega ekki eins oflug hér og heima.
Keppnin var annars fìnasta skemmtun thràtt fyrir àdurgreinda galla.

A sunnudaginn fòrum vid svo à okkar fyrsta knattspyrnuleik à erlendri grundu, thegar heimamenn ì Perugia tòku à mòti gestunum frà Reggina. Thòtt thetta hljòmi ekki merkilegur leikur var thetta mjog gaman og mikil upplifun ad sjà hversu rosalegir ìtalskir àhorfendur eru. Oryggisgaeslan var alveg brjàlud, sèrstaklega thar sem gestirnir frà Reggina voru. Thad var leitad à okkur og ì bakpokum okkar og òeirdalogregla var til stadar og thad kom reyndar til kasta hennar thegar Reggina-addàendur fòru ad kasta hlutum ì àtt ad Perugia addàendum. Vid vorum hins vegar ì stùku hordustu Perugia-addàendanna hinum megin vid vollinn, fyrir aftan annad markid. Thad er òtrùlegt hvad ìtalir eru aestir à vellinum, leikmonnum er bolvad ì sand og osku fyrir hversu lìtil mistok sem er og thegar illa gengur eru menn alveg ònytir. Hins vegar vann Perugia thennan leik svo ad ì stùkunni okkar rìkti gledi. Strìdid milli studningsmanna lidanna er lìka svakalegt. Thetta er ekki bara spurning um ad hvetja sìna menn heldur um ad rakka hitt lidid og studningsmenn thess nidur. Einn studningsmadur Perugia er med hljòdnema sem er tengdur vid hàtalarakerfi sem hjàlpar honum vid ad styra làtunum. Thegar hann gefur svo merkid tekur oll stùkan sig til, veifar hondunum ì àtt til studningsmanna gestalidsins og oskrar: "Reggina, Reggina, vafangulo," sem thydir lauslega: "Reggina, Reggina, farid ì rassgat." Gestastùkan tekur thà à mòti og hendir einhverjum svìvirdingum til baka. Thvì midur erum vid ekki bùnir ad laera nòg ì ìtolskunni til thess ad skilja allar svìvirdingarnar og taka thàtt ì stemningunni.

Thegar ég fòr ùt velti ég thvì mikid fyrir mér hvad ég yrdi kalladur hérlendis thar sem Bjarni er frekar nytt fyrir monnum hér og erfitt ì framburdi. Jeg er kominn med nokkur nofn hèrna. Einn kennarinn kallar mig Bjorn sem er nokkud naerri lagi, svo kalladi einn Hollendingurinn mig Pietri sem mér finnst ekki nògu naerri lagi og alls ekki toff. Pietri thròadist svo ùt ì Pedro ì smaskiptum vid tvaer spaenskar stelpur. Jeg er ekki alveg viss hvernig mér finnst thad, thad er reyndar sudraent og mun svalara en Pietri en ég er tilbùinn ad làta spaensku stelpurnar kalla mig hvad sem er svo lengi sem thaer eru ad tala vid mig. Onnur er med theim svakalegri sem ég hef séd, mjog smàgerd ì andliti og fìnan voxt. Ef èg aetti ad lìkja henni vid einhverja fraega myndi ég segja ad hùn vaeri svolìtid svipud typa og Penelope Cruz og bara jafnvel fallegri. Vid Pàll erum svo lìka kalladir Icemen af Hollendingum, ég held ad thad sé ekki haegt ad kvarta yfir thvì, thad er alltaf àkvedinn svalleiki yfir thvì ad vera kenndur vid ìs. Reyndar er Baldur ì Danmorku kominn med hid svala nickname: "Captain Iceland" sem er ad sjàlfsogdu enn svalara.

Thetta er thad helsta sem à okkar daga hefur drifid upp à sìdkastid fyrir utan thad ad vera fullir à Shamrock. Ad lokum vil ég varpa fram spurningunni: "ERTU MED MUNNANGUR?" Jeg veit ad flestir nemar Hàskòla Islands hafa thurft ad svara thessari spurningu en nù bid ég ykkur um ad kafa djùpt ì kjaftana à ykkur og spyrja ykkur: "Byr lìtid munnangur ì mér?" vegna thess ad Ogmund Petersson, verkfraedinema med meiru, og fodur hans vantar munnangur naudsynlega. Ef thid finnid munnangur hafid thà endilega samband vid Ogmund med rafpòsti à: ogmundur@hi.is eda hringid ì sìma: 8478193.

Thetta verdur thà ekki lengra ad thessu sinni (ordid allt of langt hvort ed er), ég er ad fara ì fòtbolta ad syna monnum hvernig àd spila.

Ciao,
Bjarni.




Thursday, September 12, 2002

 
Helgin fram undan
-allt ad gerast ì Perugia

Jaeja, nù eru hreinu fotin um thad bil bùin, vid brugdumst ad sjàlfsogdu skjòtt vid og keyptum ny. Vid aetlum okkur einnig stòra hluti ì fatathvotti en eigum enn eftir ad taka stòra skrefid go thvo fyrsta thvottinn. Vid erum ekki med thvottavél heima thannig ad vid verdum ad fara med fotin ì thvottahùs nedar ì gotunni. Thetta kemur allt med kalda vatninu. Talandi um vatn thà erum vid nybùnir ad fà heita vatnid aftur ì ìbùdina eftir viku af koldum sturtum, thad er òlìkt ljùfara ad fara ì heitar sturtur.

Mér bàrust tvaer spuringar med tolvupòsti ì fyrradag og tel réttast ad svara theim opinberlega thar sem fleiri en spyrjandinn (uberschessinn Gudmundur) gaetu haft àhuga:

Fyrri spuringin var vardandi hùd mìna. Eins og margir gaetu hafa tekid eftir er ég mjog ljos yfirlitum og à thad thvì til ad rodna ì gòdu vedri. Thvì er thannig ad svara ad sòlin hér er ekkert brjàlaedislega sterk og thràtt fyrir ad hafa sama og ekkert borid à mig af sòlaràburdi hef ég nànast ekkert brunnid. Jeg gleymdi mér thò einn fagran laugardag og fèkk ad launum orlìtinn roda à handleggina.

Hin spurningin vardadi hostl mitt (ef nokkurt vaeri). Enn hefur ekkert gerst en eins og thekkist med ìslendinga gerist mest ì thessum màlum thegar lìdur ad lokum vikunnar. Fyrir thremur dogum lysti ég thvì yfir ad lìklegast vaeru hvad mestir vaxtamoguleikar à innlenda markadnum. Einhverjir hédan à Italìu hafa greinilega lesid Skìtinn eda kìkt à Tvo fìfl, thvì ekki stòd à vidbrogdum. Yfirvold hér ì Perugia svorudu kallin (enda hofum vid mikid verid ad spila "Svaradu kallinu" med Hebba) og halda fyrir okkur eitt stykki, Miss Perugia, nidri ì midbae ì kvold. Thar aetla their ad syna bestu eintok framleidslu stadarins. Sem fréttaritari get ég ad sjàlfsogdu ekki làtid slìkan vidburd fram hjà mér fara og mun tharna fà gott yfirlit yfir thad besta sem undan Perugia-bùum hefur komid à undanfornum àrum. Jeg aetladi mér ad vera ordinn mellufaer ì ìtolskunni (thò ekki til thess ad nà mér ì mellu) en ég veit ekki hvort ég kann nògu mikid til thess ad heilla thaer ìtolsku.
Hvort fyrirhugud markadssòkn mìn mun nà einhverjum àrangri er erfitt ad spà fyrir um en ég mun reyna ad halda aestum lesendum Skìtsins og Tveggja fìfla eins mikid inni ì màlunum og sidgaedi leyfir.







Sunday, September 08, 2002

 
Pistill frà Perugia
-fréttaritari Skìtsins à Italìu stimplar sig inn


Jeg hef ordid var vid ad folsud fréttaskeyti frà Italìu hafa verid ad birtast sem eru kennd vid mig og tel thvì réttast ad senda sannar fréttir til thess ad reyna ad stemma stigu vid misskilningi og leidindum. Thò ber ad taka thad fram ad stjòrnandi Skìtsins, uberscheisserinn, Gudmundur St. St., hefur moguleika à thvì ad krukka ì pistlum fréttaritara og ef svo fer ad hann gerir thad thà vil ég benda à eldheitan fréttaflutning à heimasìdu thessa Italiuleidangurs okkar Pàls, Tvo fifl à Italìu.

Vid erum nù bùnir ad vera thrjà daga ì tungumàlaskòlanum og gengur misjafnlega ad nà màlinu. Vid erum thò komnir med helstu frasa eins og "Jeg heiti Bjarni", "Eina pizzusneid, takk" og "Einn stòran bjòr, takk". Annars er mjog mikid af erlendum nemendum hér (enda heitir skòlinn, Hàskòlinn fyrir ùtlendinga) thannig ad skortur à ìtolskukunnàttu er ekki ad hà okkur neitt ad ràdi. Djammlìfid hèrna er fìnt, ì midnaenum er stòrt torg med gosbrunni og troppum thar sem fòlk situr ad sumbli fram eftir ollu. Thad er svolìtid svipud stemning og à Laekjartorgivid, nema fòlkid er eldra, menn eru ekki eins drukknir og hitinn er òlìkt haerri, einhvern tìma eftir midnaettid ì gaer var hitinn 18 gràdur. Svo erum vid bùnir ad kanna tvo bari og tvo klùbba/diskòtek. Annar barinn synir fòtboltaleiki af Skysports og vid sàum England-Portùgal ì gaer (laugardag) og aetlum à Arsenal-Man.City à thridjudaginn. Hinn barinn er stùdentabar à fjòrum haedum (ein og hàlf haed er inni og tvaer og hàlf ùti) og thar er alltaf haegt ad finna einhvern til ad djamma med. Thad er svo mikid af krokkum à nàmskeidinu sem thekkja engann ad thad er ekkert màl ad tylla sér nidur og byrja ad spjalla vid hvern sem er. Annars erum vid bùnir ad kynnast nokkrum krokkum frà Hollandi sem vid hofum verid ad djamma med undanfarin kvold. Kvennamarkadurinn hér er svona lala, eda così così eins og vid segjum hér à Italìu, thad eru nokkrar gòdar à nàmskeidinu og svo er innlenda framleidslan ì fìnu lagi. Madur er nù samt ekki farinn ad haetta sér inn à innlenda markadinn thar sem ìtolskukunnàttan leyfir ekki mikinn svalleika. Hins vegar tel ég ad vaxtarmoguleikarnir sèu hvad mestir à innlenda markadnum, vid erum haerri en flestir brilljantìnsmurdir heimamennirnir (jafnvel Palli er ì haerri kantinum) og thvì er markmidid ad vera ordinn spjallfaer um naestu helgi og sjà hvad er ad fà.

Jeg verd ad drìfa mig svo ad pistillinn verdur ekki lengri ad thessu sinni en mun vaentanlega henda inn nokkrum ordum à naestu dogum.

Ciao,
einn sveittur og sòlbrùnn.




Monday, September 02, 2002

 
Komnir a tindinn

Vid erum nu komnir til Perugia sem er nokkud uppi i fjollum og buum nu i penthouse-ibud med utsyni yfir baeinn. Vid sjaum nu greinilega ad jordin er hnottur.
Vid erum innan gomlu borgarmuranna sem afmarka midbaeinn og allt naudsynlegt er i um 5-minutna gongufjarlaegd. Vid reynum ad babbla okkur afram a itolsku en faum alltaf vandraedaleg bros a moti okkur. Vid gefumst tho ekki upp thott moti blasi thratt fyrir tho nokkur vindstig uti (lallegt).
Bjorverd er til fyrirmyndar, um €1 (85 ISK) fyrir 660 ml, og hofum vid thvi fest kaup a nokkrum slikum floskum.

Sparnadarradin tvo ad thessu sinni:
1) Koma til Italiu og kaupa Bjor.
2) Seinna sparnadarradid kemur ur flugferd okkar med Ryanair. Vid komumst ad thvi ad saetaval er frjalst i fluginu thannig ad fyrstir koma fyrstir fa. Hins vegar er barnafolk med forgang i rodinni. Einnig komumst vid ad thvi ad saetin vid neydarutgangana a vaengjunum eru sjerstaklega rumgod og eru adeins fyrir ofatlada of barnlausa (sem vid teljum okkur vera). Sparnadarradid er thvi thetta:
Kaupa mida i Ryanair-flug, fa lanadan krakka af einhverjum sem hefur slikt a sjer, komast thannig fram fyrir rodina, fara i vjelina, skila krakkanum og drifa sig i neydarutgangasaetin (sem eru laus thar sem adeins barnafolk er i vjelinni).

Verid vakandi fyrir fleiri sparnadarradum a Tvo fifl a Italiu.








Saturday, August 31, 2002

 
Fyrsta afanga nad

Vid erum nu komnir i grunnbudir i London og atlaga verdur gerd ad tindinum a morgun. Thessi eftirmiddagur hefur mestmegnis farid i rolt um straeti Lunduna og bjordrykkju a hinum margfraega Cheers-bar hjer i London. Pall er einnig ad thjena gridarlega a svikamyllu sem vid uppgotvudum sidasta sumar. Hun felst i thvi ad nyta sjer thad ad hinn islenski 10-kall er jafnthungur hinum breska 50-penca pening (65 kronur) og virkar thvi sem 50-pence i marga sjalfsala. Aaetladur heildargrodi af thessu plotti slagar nu thegar hatt i niunda hundrad krona. Fyrir tha sem hyggjast nyta sjer thennan veikleika breskra sjalfsala og spilakassa skal tho bent a thad ad hinn margfraegi '96-tikall er ekki gjaldgengur i bresk taeki. Vid thokkum Sedlabankanum kaerlega fyrir ad hafa akvedid ad ljetta tikallinn thetta arid. Finnur Ingolfs greinilega ad gera goda hluti.

Frekari frjettir verda birtar jafnhardan og thaer gerast og jafnvel verda fleiri sparnadarrad veitt. Fylgist thvi vel med Tveimur fiflum a Italiu a naestunni.







This page is Powered By Blogger. Isn't yours?